þriðjudagur, júní 21, 2005
Þurrkasumar
Haldi einhver að þurrkur hafi einkennt veðráttuna hingað til í sumar er það hégómi einn miðað við þann þurrk sem nú á sér stað í vistarverunum. Það eru þrír blásarar í gangi sem eiga að soga margra mánaða rakaleka úr veggjum og gólfi og engum vært innivið á meðan. Lítið við því að gera og þar til hér verður flutt inn á ný mun ég lítið tjá mig á þessum vettvangi.
miðvikudagur, júní 08, 2005
Rörlekaleiðindi
Leiðindabasl með lekt rör í gólfi og raki út um allt. Hér verður allt á haus frameftir sumri en við höfum verið lánsöm að hafa aðgang að fínum sumarbústað í næstu götu.
Líka mikið um að vera í vinnunni þannig að tíminn fer í annað en tölvustúss á kvöldin.
Og mínir menn með bestu leiktíð í háa herrans og hvað gerist? Jú, stjórinn sem allir elska segir upp vegna samskiptaörðugleika. Manni verður hugsað til kvæðis Oscar Wilde um Reading Gaol muniði...